05.04.2010 20:21
Hitt og þetta
Góða kvöldið.
Langt síðan ég hef skrifað. Búin að vera í Björginni og að útrétta og versla. Átti góð jól og ágætis áramót með Tis tis mitt, grallarakött. Hann tekur upp á ýmsu sem og að sofa í kössum og á jólatrém. Guðrún í Björginni kallar hann tígrisdýrið.
Janúar flutti ég í splúnku nýja íbúð í Innri-Njarðvík. Rosalega flott íbúð og líður vel hér.
Fór til Svönu eina helgina í mars og í fermingu til Írisar. Það var góð og notaleg helgi.
Siggi og Prinsi hafa kíkt í heimsókn annars slagið til okkar Tis tis.
Svo um páskana kom hann Stefán Freyr í heimsókn og það var líka góð helgi. Við fórum á smá sígunaflakk í gær þar sem við keyrðum Suðurstrandarveginn (Krýsuvíkurveginn) og ætluðum að kíkja í heimsókn til langafa og langömmu Stefáns í Hverargerði en þau voru komin í Vatnsleysu-ströndina þegar að við vorum komin til þeirra. Þaðan héldum við til Selfoss þar sem við snæddum á hamborgarafabrikkunni þar (hoho). Svo héldum við af stað áfram og þurftum að ákveða hvort við ætluðum að gosinu eða upp á Flúðir, en Flúðir urðu fyrir valinu og keyrðum við þangað og komum við á Sólheimum í Hrunamannahreppi þar sem hún Esther, frænka Stefáns, býr og er með býli. Við kíktu í fjósið og í minjasafnið hennar. Svo sáum við marga flotta bíla. Til dæmis líkbílinn sem notaður var í myndinni Djöflaeyjunni, gamlan mjólkurbíl og marga gamla ameríska kagga. En einnig sáum við bíl sem var allur brunninn en þó ökufær ótrúlegt en satt og fór hún á honum niður á Flúðir í fyrra þar sem fólk missti andlitið gjörsamlega yfir þeirri sjón.
Þaðan fórum við svo niður að Laugarvatni þar sem við ætluðum að hitta á Svönu og Möggu, en misstum af þeim og stoppuðum þá bara smá hjá Sigga og stelpunum. Svo átti að taka olíu á staðnum en vildi ekki gleypa kortið.
Þá tókum við olíu við Hveragerði og sáum norðurljós og héldum svo heim á leið þreytt og ánægð með daginn.